เมนู
einn, tveir og elda ehf

einn, tveir og elda ehf

Markmið Einn, tveir og elda er að einfalda þér lífið. Hvernig líst þér á að fara beint heim eftir langan vinnudag og njóta gæðastunda með fjölskyldunni í stað þess að eyða dýrmætum tíma í matarinnkaup? Það er ekkert betra í lok vinnudags en að eyða tímanum með þeim sem við elskum. 
Í pökkunum frá okkur færðu allt sem til þarf í uppskriftina þína, brakandi ferskt hráefni í bestu mögulegum gæðum og ítarlegar leiðbeiningar, allt til að gera þig að meistara í eldhúsinu.
Við elskum að elda og okkur finnst fátt skemmtilegra en að deila þeirri ást með þér. Þú getur fylgst með öllu sem gerist á bak við tjöldin hjá okkur, bæði á Facebook og Instagram, skemmtilegum uppákomum, eldamennskunni og öllu því óborganlega sem alltaf gerist í eldhúsinu.
Við kappkostum við að hafa fjölbreytni í matargerðinni. Þannig getur þú lært nýjar aðferðir og komið bragðlaukunum endalaust á óvart með framandi, spennandi og fersku bragði.
Við afgreiðum matarpakkana okkar á mánudögum og þriðjudögum í hverri viku, pöntunarfresturinn hjá okkur rennur út kl.13 á fimmtudögum til að fá afhent í vikunni á eftir. Hjá okkur getur þú valið réttina í þinn matarpakka eftir þörfum fjölskyldunnar, nákvæmlega eins og þú vilt hafa það!